þriðjudagur, 5. október 2010

REGLUR

Keppnin gengur undir nafninu Drekktu betur og er haldin á Gallery-Bar 46, Hverfisgötu 46, hvern föstudag klukkan 18:00.

Í hverri viku mætir nýr spyrill með 30 spurningar í farteskinu. Æskilegt er þó að hver spyrill sé einnig með 10-15 spurningar sem hægt er þá að nota í bráðabana og sem gjammspurningar. Best er ef spurningar eru einfaldar og hnitmiðaðar. Einnig þykir við hæfi að hverri spurningu fylgi aðeins eitt svar, eða svör séu tengd órjúfanlegum böndum, séu svörin fleiri en eitt.

Hvert lið sem keppir skal innihalda tvo einstaklinga. Ekki fleiri, ekki færri. Þegar spyrill hefur lokið við að spyrja sinna 30 spurninga gefst keppnisliðum tími til að fara yfir svör og jafnvel að láta spyril lesa einstaka spurningar aftur. Því næst skiptast lið á svarblöðum, þannig að ekkert lið fer yfir eigin svarblað.Þegar búið er að fara yfir allar spurningar, skiptast liðin aftur á blöðum og á þá hvert lið að vera komið með sitt svarblað í hendur.Eftir það er farið yfir hvaða lið er með flest svör rétt. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun, þarf sigurliðið að vera með 15 svör rétt eða fleiri.

Í hverri keppni er Bjórspurning. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Spyrill þarf þó að kvitta fyrir Bjórspurninguna.

Bráðabani: Þegar tvö eða fleiri lið hafa jafnmörg svör rétt eftir 30 spurningar skal gripið til bráðabana. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja þriggja spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir það, skal spyrill spyrja spurninga, einnar og einnar í einu þar til úrslit fást.

Gjamm og háreysti, sérstaklega í þeim tilvikum að svör eru kölluð yfir salinn, er einkar illa liðið. Er þá skipt um spurningu og svokölluð gjammspurning leysir þá fyrri af hólmi og gildir þá aðeins svarið við gjammspurningunni, en ekki spurningunni sem spurð var áður. Í grófum tilvikum, til dæmis við ítrekað gjamm, má vísa keppanda af keppnissvæði.

Spyrill er dómari og alvaldur og getur því tekið af skarið ef vafi leikur á staðreyndum í spurningu eða svari. Vilji spyrill ekki sjálfur taka afstöðu, má hann vísa til keppnisstjórnar, sem þá fellir dóm.

Keppnisgjöld eru engin, en þar sem við fáum salinn endurgjaldslaust er mælst til að keppendur versli sér áfengi á barnum. (Keppnin heitir jú Drekktu Betur)
Keppnisstjórn er heimilt í öllum tilvikum að kalla á lyfjapróf leiki grunur um að sigurlið hafi ekki innbyrt að hinu minnsta einn bjór, eða sambærilegan drykk.

Góða skemmtun og drekkum betur.
Gunnar F. Árnason
Keppnisstjóri

föstudagur, 3. september 2010

3. SEPTEMBER

Spyrill dagsins er Jón Brynjarsson.

Sigurvegarar síðustu viku voru Bergsteinn Sigurðsson og Örn Úlfar Sævarsson, en þeir náðu 21 stigi út úr keppninni.

373.keppnin

fimmtudagur, 26. ágúst 2010

27. ÁGÚST

Spyrill dagsins er Kolbeinn Ó. Proppé.

Sigurvegarar síðustu keppni voru þau Hafþór Ragnarsson og Arnfríður I. Arnmundsdóttir, en þau náðu að svara 22 spurningum rétt.


372.keppnin

fimmtudagur, 20. maí 2010

21. MAÍ

Spyrill dagsins er Björn Teitsson.
Sigurvegarar síðustu keppni voru Garðar Guðnason og Þór Jóhannesson og höfðu þeir 20 svör rétt.

358.keppnin.

mánudagur, 10. maí 2010

14. MAÍ

Spyrill dagsins er Steinþór Sigurðsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru aðra vikuna í röð þeir Benedikt Waage og Finnbogi Óskarsson, en í þetta skiptið náðu þeir 18 svörum réttum.

357. keppnin

miðvikudagur, 5. maí 2010

7. MAÍ

Spyrill dagsins er Ævar Örn Jósepsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru þeir Benedikt Waage og Finnbogi Óskarsson, en þeir náðu að svara 24 spurningum rétt.

356.keppnin

fimmtudagur, 29. apríl 2010

30 APRÍL

Spyrlar dagsins eru Sigurlaugur Ingólfsson og Guðbrandur Benediktsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru þeir Steinþór Sigurðsson og Ævar Örn Jósepsson, en þeir náðu 22 svörum réttum.

355. keppnin

View My Stats