mánudagur, 31. ágúst 2009

4. SEPTEMBER

Spyrill dagsins er Sigurbjörn Kristjánsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru þeir Hafsteinn V. Hafsteinsson og Víðir S. Petersen, en þeir náðu 20 svörum réttum úr keppninni og öðrum 3 úr bráðabana.


323.keppnin.

þriðjudagur, 25. ágúst 2009

28. ÁGÚST

Spyrlar dagsins eru Sigurlaugur Ingólfsson og Guðbrandur Benediktsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Bergsteinn Sigurðsson og Kolbeinn Ó. Proppé, en þeir náðu 26 svörum réttum.


322.

miðvikudagur, 19. ágúst 2009

21. ÁGÚST

Spyrlar dagsins eru vinkonurnar og sagnfræðingarnir Hildur og Björk.

Sigurvegarar síðustu keppni voru þeir Steinþór Sigurðsson og Ævar Örn Jósepsson, en þeir náðu 20 svörum réttum úr aðalkeppninni og svo öðrum 5 úr framlengdum bráðabana.


321.keppnin

fimmtudagur, 13. ágúst 2009

REGLUR

Aldrei er góð vísa of oft kveðin, þannig að hér eru reglur keppninnar birtar einu sinni enn.

Keppnin gengur undir nafninu Drekktu betur og er haldin á efri hæð Grand Rokk, Smiðjustíg 6, hvern föstudag klukkan 18:00.

Í hverri viku mætir nýr spyrill með 30 spurningar í farteskinu. Æskilegt er þó að hver spyrill sé einnig með 10-15 spurningar sem hægt er þá að nota í bráðabana og sem gjammspurningar.

Hvert lið sem keppir skal innihalda tvo einstaklinga. Ekki fleiri, ekki færri. Þegar spyrill hefur lokið við að spyrja sinna 30 spurninga gefst keppnisliðum tími til að fara yfir svör og jafnvel að láta spyril lesa einstaka spurningar aftur. Því næst skiptast lið á svarblöðum, þannig að ekkert lið fer yfir eigin svarblað.Þegar búið er að fara yfir allar spurningar, skiptast liðin aftur á blöðum og á þá hvert lið að vera komið með sitt svarblað í hendur.Eftir það er farið yfir hvaða lið er með flest svör rétt. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun, þarf sigurliðið að vera með 15 svör rétt eða fleiri.

Í hverri keppni er Bjórspurning. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Spyrill þarf þó að kvitta fyrir Bjórspurninguna.

Bráðabani: Þegar tvö eða fleiri lið hafa jafnmörg svör rétt eftir 30 spurningar skal gripið til bráðabana. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja þriggja spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir það, skal spyrill spyrja spurninga, einnar og einnar í einu þar til úrslit fást.

Gjamm og háreysti, sérstaklega í þeim tilvikum að svör eru kölluð yfir salinn, er einkar illa liðið. Er þá skipt um spurningu og svokölluð gjammspurning leysir þá fyrri af hólmi og gildir þá aðeins svarið við gjammspurningunni, en ekki spurningunni sem var spurt áður. Í grófum tilvikum, til dæmis við ítrekað gjamm, má vísa keppanda af keppnissvæði.

Spyrill er dómari og alvaldur og getur því tekið af skarið ef vafi leikur á staðreyndum í spurningu eða svari. Vilji spyrill ekki sjálfur taka afstöðu, má hann vísa til keppnisstjórnar, sem þá fellir dóm.

Keppnisgjöld eru engin, en þar sem við fáum salinn endurgjaldslaust er mælst til að keppendur versli sér áfengi á barnum. (Keppnin heitir jú Drekktu Betur)
Keppnisstjórn er heimilt í öllum tilvikum að kalla á lyfjapróf leiki grunur um að sigurlið hafi ekki innbyrt að hinu minnsta einn bjór, eða sambærilegan drykk.

Góða skemmtun og drekkum betur.
Gunnar F. Árnason
Keppnisstjóri

14. ÁGÚST

Spyrill dagsins er Kristinn Pálsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru þeir Ragnar Egilsson og Marvin Lee Dupree, en þeir náðu að svara 17 spurningum rétt.

320.keppnin

laugardagur, 1. ágúst 2009

7, ÁGÚST

Þar sem Gay Pride hátíðin er haldin um þetta leyti, hefur skapast hefð fyrir því að fá Draggdrottningar til að lesa upp spurningar í keppninni. Því hefur keppnisstjórn óskað liðsinnis Roxie og Keikó til að annast stjórn næstu keppni.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Bergsteinn Sigurðsson og Kolbeinn Óttarsson Proppé, en þeir náðu að svara 27 spurningum réttum.



318.keppnin

View My Stats