miðvikudagur, 27. maí 2009

29 MAÍ

Spyrill dagsins er Kolbeinn Óttarsson Proppé.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Eygló Kristjánsdóttir og Ragna Kristinsdóttir, en þær náðu 16 svörum réttum.


309. keppnin

þriðjudagur, 19. maí 2009

22.MAÍ

Spyrlar dagsins eru vinkonurnar Sigrún Huld Skúladóttir og Katrín Guðmundsdóttir.

Sigurvegarar síðustu keppni voru þau Sveinn Guðmarsson og Þórhildur Ólafsdóttir, en þau náðu glæsilegum árangri með 28 svör rétt.


308.keppnin

REGLUR

Aldrei er góð vísa of oft kveðin, þannig að hér eru reglur keppninnar birtar einu sinni enn.

Keppnin gengur undir nafninu Drekktu betur og er haldin á efri hæð Grand Rokk, Smiðjustíg 6, hvern föstudag klukkan 18:00.

Í hverri viku mætir nýr spyrill með 30 spurningar í farteskinu. Æskilegt er þó að hver spyrill sé einnig með 10-15 spurningar sem hægt er þá að nota í bráðabana og sem gjammspurningar.

Hvert lið sem keppir skal innihalda tvo einstaklinga. Ekki fleiri, ekki færri. Þegar spyrill hefur lokið við að spyrja sinna 30 spurninga gefst keppnisliðum tími til að fara yfir svör og jafnvel að láta spyril lesa einstaka spurningar aftur. Því næst skiptast lið á svarblöðum, þannig að ekkert lið fer yfir eigin svarblað.Þegar búið er að fara yfir allar spurningar, skiptast liðin aftur á blöðum og á þá hvert lið að vera komið með sitt svarblað í hendur.Eftir það er farið yfir hvaða lið er með flest svör rétt. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun, þarf sigurliðið að vera með 15 svör rétt eða fleiri.

Í hverri keppni er Bjórspurning. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Spyrill þarf þó að kvitta fyrir Bjórspurninguna.

Bráðabani: Þegar tvö eða fleiri lið hafa jafnmörg svör rétt eftir 30 spurningar skal gripið til bráðabana. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja þriggja spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir það, skal spyrill spyrja spurninga, einnar og einnar í einu þar til úrslit fást.

Gjamm og háreysti, sérstaklega í þeim tilvikum að svör eru kölluð yfir salinn, er einkar illa liðið. Er þá skipt um spurningu og svokölluð gjammspurning leysir þá fyrri af hólmi og gildir þá aðeins svarið við gjammspurningunni, en ekki spurningunni sem var spurt áður. Í grófum tilvikum, til dæmis við ítrekað gjamm, má vísa keppanda af keppnissvæði.

Spyrill er dómari og alvaldur og getur því tekið af skarið ef vafi leikur á staðreyndum í spurningu eða svari. Vilji spyrill ekki sjálfur taka afstöðu, má hann vísa til keppnisstjórnar, sem þá fellir dóm.

Keppnisgjöld eru engin, en þar sem við fáum salinn endurgjaldslaust er mælst til að keppendur versli sér áfengi á barnum. (Keppnin heitir jú Drekktu Betur)
Keppnisstjórn er heimilt í öllum tilvikum að kalla á lyfjapróf leiki grunur um að sigurlið hafi ekki innbyrt að hinu minnsta einn bjór, eða sambærilegan drykk.

Góða skemmtun og drekkum betur.
Gunnar F. Árnason
Keppnisstjóri

þriðjudagur, 12. maí 2009

15 MAÍ

Lífsförunautarnir Hildur Arna Gunnarsdóttir og Björk Þorleifsdóttir sjá um spurningarnar næsta föstudag. Hildur er fyrrum tattústofuklinka sem kann best við sig í apótekum og bakaríum. Björk starfar sem hundapassari og eyðir frítíma sínum í að elta Goombay Danceband um heiminn í von um eiginhandaráritun.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Bjarni Þ. Sigurbjörnsson og Ingvi Þ. Sæmundsson, en þeir náðu 22 svörum réttum.




307

miðvikudagur, 6. maí 2009

8. MAÍ

Spyrill dagsins er Stefán Freyr Guðmundsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Bergsteinn Sigurðsson og Kolbeinn Ó. Proppé, en þeir höfðu 20 svör rétt.


306. keppnin

View My Stats