fimmtudagur, 29. október 2009

30. OKTÓBER

Spyrill dagsins er Marvin Lee Dupree og þema keppninnar er Halloween.

Sigurvegarar síðustu keppni voru þeir Sigurlaugur Ingólfsson og Bjarki Þ. Steinarsson, en þeir náðu að svara 23 spurningum rétt.

331.keppnin

þriðjudagur, 20. október 2009

23.OKTÓBER

Spyrill dagsins er Hafsteinn V. Hafsteinsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru félagarnir Steinþór Sigurðsson og Garðar Guðnason, en þeir náðu að svara 17 spurningum rétt.


330. keppnin

REGLUR

Aldrei er góð vísa of oft kveðin, þannig að hér eru reglur keppninnar birtar einu sinni enn.

Keppnin gengur undir nafninu Drekktu betur og er haldin á efri hæð Grand Rokk, Smiðjustíg 6, hvern föstudag klukkan 18:00.

Í hverri viku mætir nýr spyrill með 30 spurningar í farteskinu. Æskilegt er þó að hver spyrill sé einnig með 10-15 spurningar sem hægt er þá að nota í bráðabana og sem gjammspurningar. Best er ef spurningar eru einfaldar og hnitmiðaðar. Einnig þykir við hæfi að hverri spurningu fylgi aðeins eitt svar, eða svör séu tengd órjúfanlegum böndum, séu svörin fleiri en eitt.

Hvert lið sem keppir skal innihalda tvo einstaklinga. Ekki fleiri, ekki færri. Þegar spyrill hefur lokið við að spyrja sinna 30 spurninga gefst keppnisliðum tími til að fara yfir svör og jafnvel að láta spyril lesa einstaka spurningar aftur. Því næst skiptast lið á svarblöðum, þannig að ekkert lið fer yfir eigin svarblað.Þegar búið er að fara yfir allar spurningar, skiptast liðin aftur á blöðum og á þá hvert lið að vera komið með sitt svarblað í hendur.Eftir það er farið yfir hvaða lið er með flest svör rétt. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun, þarf sigurliðið að vera með 15 svör rétt eða fleiri.

Í hverri keppni er Bjórspurning. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Spyrill þarf þó að kvitta fyrir Bjórspurninguna.

Bráðabani: Þegar tvö eða fleiri lið hafa jafnmörg svör rétt eftir 30 spurningar skal gripið til bráðabana. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja þriggja spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir það, skal spyrill spyrja spurninga, einnar og einnar í einu þar til úrslit fást.

Gjamm og háreysti, sérstaklega í þeim tilvikum að svör eru kölluð yfir salinn, er einkar illa liðið. Er þá skipt um spurningu og svokölluð gjammspurning leysir þá fyrri af hólmi og gildir þá aðeins svarið við gjammspurningunni, en ekki spurningunni sem spurð var  áður. Í grófum tilvikum, til dæmis við ítrekað gjamm, má vísa keppanda af keppnissvæði.

Spyrill er dómari og alvaldur og getur því tekið af skarið ef vafi leikur á staðreyndum í spurningu eða svari. Vilji spyrill ekki sjálfur taka afstöðu, má hann vísa til keppnisstjórnar, sem þá fellir dóm.

Keppnisgjöld eru engin, en þar sem við fáum salinn endurgjaldslaust er mælst til að keppendur versli sér áfengi á barnum. (Keppnin heitir jú Drekktu Betur)
Keppnisstjórn er heimilt í öllum tilvikum að kalla á lyfjapróf leiki grunur um að sigurlið hafi ekki innbyrt að hinu minnsta einn bjór, eða sambærilegan drykk.

Góða skemmtun og drekkum betur.
Gunnar F. Árnason
Keppnisstjóri

þriðjudagur, 13. október 2009

16. OKTÓBER

Spyrill dagsins er Gústaf Hannibal.

Sigurvegarar síðustu keppni voru þau Unnur H. Brjánsdóttir og Hafsteinn V. Hafsteinsson, en þau náðu að svara 21 spurningu rétt.


329.keppnin

laugardagur, 3. október 2009

9. OKTÓBER

Spyrill dagsins er Víðir S. Petersen.

Sigurvegarar síðustu keppni  voru Kolbeinn Ó. Proppé og Björn Þór Sigbjörnsson, en þeir náðu að svara 26 spurningum rétt.


328.keppnin.

Efnisorð:


View My Stats