sunnudagur, 26. október 2008

31. OKTÓBER

Spyrill dagsins er Ingi Tandri Traustason starfsmaður 12 tóna.

Sigurvegarar síðustu viku voru Hafsteinn V. Hafsteinsson og Víðir Petersen, en þeir náðu 22 svörum réttum.


280. keppnin

mánudagur, 20. október 2008

24. OKTÓBER

Spyrill dagsins er ofurbloggarinn Andrés Jónsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Páll Hilmarsson og Kolbeinn Óttarsson Proppé, en þeir náðu 22 svörum réttum, ásamt þremur í viðbót út úr bráðabana við Kristin Pálsson og Ágúst Ö. Gíslason.


279. keppnin

föstudagur, 10. október 2008

17. OKTÓBER

Spyrill dagsins er Óliver Stón.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Kristinn Pálsson og Ágúst Örn Gíslason, en þeir höfðu 21 rétt svar.


278. keppnin

laugardagur, 4. október 2008

10. OKTÓBER

Spyrlar dagsins eru Hafsteinn V. Hafsteinsson og Víðir Petersen, en svo vill til að þeir sigruðu síðustu keppni með 26 svör rétt.

REGLUR

Aldrei er góð vísa of oft kveðin, þannig að hér eru reglur keppninnar birtar einu sinni enn.

Keppnin gengur undir nafninu Drekktu betur og er haldin á efri hæð Grand Rokk, Smiðjustíg 6, hvern föstudag klukkan 18:00.

Í hverri viku mætir nýr spyrill með 30 spurningar í farteskinu. Æskilegt er þó að hver spyrill sé einnig með 10-15 spurningar sem hægt er þá að nota í bráðabana og sem gjammspurningar.

Hvert lið sem keppir skal innihalda tvo einstaklinga. Ekki fleiri, ekki færri. Þegar spyrill hefur lokið við að spyrja sinna 30 spurninga gefst keppnisliðum tími til að fara yfir svör og jafnvel að láta spyril lesa einstaka spurningar aftur. Því næst skiptast lið á svarblöðum, þannig að ekkert lið fer yfir eigin svarblað.Þegar búið er að fara yfir allar spurningar, skiptast liðin aftur á blöðum og á þá hvert lið að vera komið með sitt svarblað í hendur.Eftir það er farið yfir hvaða lið er með flest svör rétt. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun, þarf sigurliðið að vera með 15 svör rétt eða fleiri.

Í hverri keppni er Bjórspurning. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Spyrill þarf þó að kvitta fyrir Bjórspurninguna.

Bráðabani: Þegar tvö eða fleiri lið hafa jafnmörg svör rétt eftir 30 spurningar skal gripið til bráðabana. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja þriggja spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir það, skal spyrill spyrja spurninga, einnar og einnar í einu þar til úrslit fást.

Gjamm og háreysti, sérstaklega í þeim tilvikum að svör eru kölluð yfir salinn, er einkar illa liðið. Er þá skipt um spurningu og svokölluð gjammspurning leysir þá fyrri af hólmi og gildir þá aðeins svarið við gjammspurningunni, en ekki spurningunni sem var spurt áður. Í grófum tilvikum, til dæmis við ítrekað gjamm, má vísa keppanda af keppnissvæði.

Spyrill er dómari og alvaldur og getur því tekið af skarið ef vafi leikur á staðreyndum í spurningu eða svari. Vilji spyrill ekki sjálfur taka afstöðu, má hann vísa til keppnisstjórnar, sem þá fellir dóm.

Keppnisgjöld eru engin, en þar sem við fáum salinn endurgjaldslaust er mælst til að keppendur versli sér áfengi á barnum. (Keppnin heitir jú Drekktu Betur)
Keppnisstjórn er heimilt í öllum tilvikum að kalla á lyfjapróf leiki grunur um að sigurlið hafi ekki innbyrt að hinu minnsta einn bjór, eða sambærilegan drykk.

Góða skemmtun og drekkum betur.
Gunnar F. Árnason
Keppnisstjóri

View My Stats