Spyrlar dagsins eru þeir Ölvir Gíslason og Steinþór Steingrímsson, eða Óliver Stón, fyrir þá sem þá þekkja. Þeir eru jafnframt höfundar hins stórskemmtilega spurningaspils Spurt að leikslokum.
Sigurvegarar síðustu keppni voru Stígur Helgason og Kjartan Guðmundsson, en þeir náðu 20 réttum svörum.
Ef þið viljið skrá ykkur sem spyrla, eða fá að vita eitthvað um keppnina, er um að gera að hafa samband við mig annað hvort í síma 893-7353, eða senda póst á glotti@simnet.is