mánudagur, 25. ágúst 2008

29. ÁGÚST

Spyrlar dagsins eru Hafsteinn V. Hafsteinsson og Víðir Petersen. Þema keppninnar er dægurmál (tónlist, kvikmyndir o.s.frv.), stjórnmál og íþróttir. Yfirskrift keppninnar er "Tengingar" þar sem önnur spurning tengist þeirri fyrstu, sú þriðja þeirri annarri og svo koll af kolli.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Magnús Þ. Lúðvíksson og Björn R. Halldórsson, en þeir náðu 21 svari réttu.


271. keppnin

mánudagur, 18. ágúst 2008

22. ÁGÚST

Spyrlar dagsins eru Elías Karl Guðmundsson og Halldór Kristján Þorsteinsson.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Ævar Örn Jósepsson og Steinþór Sigurðsson, en þeir náðu 18 svörum réttum.


270. keppnin.

miðvikudagur, 13. ágúst 2008

15. ÁGÚST

Spyrill dagsins er Bergsteinn Sigurðsson blaðamaður á Fréttablaðinu.

Draggkeppni síðustu viku unnu Maren Ösp Hauksdóttir og Fríða Björk Skúladóttir, en þær stöllur náðu 19 svörum réttum ásamt einu að auki úr framlengdum bráðabana.


269. keppnin.

laugardagur, 9. ágúst 2008

REGLUR

Keppnin gengur undir nafninu Drekktu betur og er haldin á efri hæð Grand Rokk, Smiðjustíg 6, hvern föstudag klukkan 18:00.

Í hverri viku mætir nýr spyrill með 30 spurningar í farteskinu. Æskilegt er þó að hver spyrill sé einnig með 10-15 spurningar sem hægt er þá að nota í bráðabana og sem gjammspurningar.

Hvert lið sem keppir skal innihalda tvo einstaklinga. Ekki fleiri, ekki færri. Þegar spyrill hefur lokið við að spyrja sinna 30 spurninga gefst keppnisliðum tími til að fara yfir svör og jafnvel að láta spyril lesa einstaka spurningar aftur. Því næst skiptast lið á svarblöðum, þannig að ekkert lið fer yfir eigin svarblað.Þegar búið er að fara yfir allar spurningar, skiptast liðin aftur á blöðum og á þá hvert lið að vera komið með sitt svarblað í hendur.Eftir það er farið yfir hvaða lið er með flest svör rétt. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun, þarf sigurliðið að vera með 15 svör rétt eða fleiri.

Í hverri keppni er Bjórspurning. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Spyrill þarf þó að kvitta fyrir Bjórspurninguna.

Bráðabani: Þegar tvö eða fleiri lið hafa jafnmörg svör rétt eftir 30 spurningar skal gripið til bráðabana. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja þriggja spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir það, skal spyrill spyrja spurninga, einnar og einnar í einu þar til úrslit fást.

Gjamm og háreysti, sérstaklega í þeim tilvikum að svör eru kölluð yfir salinn, er einkar illa liðið. Er þá skipt um spurningu og svokölluð gjammspurning leysir þá fyrri af hólmi og gildir þá aðeins svarið við gjammspurningunni, en ekki spurningunni sem var spurt áður. Í grófum tilvikum, til dæmis við ítrekað gjamm, má vísa keppanda af keppnissvæði.

Spyrill er dómari og alvaldur og getur því tekið af skarið ef vafi leikur á staðreyndum í spurningu eða svari. Vilji spyrill ekki sjálfur taka afstöðu, má hann vísa til keppnisstjórnar, sem þá fellir dóm.

Keppnisgjöld eru engin, en þar sem við fáum salinn endurgjaldslaust er mælst til að keppendur versli sér áfengi á barnum. (Keppnin heitir jú Drekktu Betur)
Keppnisstjórn er heimilt í öllum tilvikum að kalla á lyfjapróf leiki grunur um að sigurlið hafi ekki innbyrt að hinu minnsta einn bjór, eða sambærilegan drykk.

Góða skemmtun og drekkum betur.
Gunnar F. Árnason
Keppnisstjóri

sunnudagur, 3. ágúst 2008

8. ÁGÚST

Í tilefni Gay Pride helgarinnar eru það dragdrottningarnar Roxy og Keiko sem munu spyrja að þessu sinni. Þema keppninnar er þrískipt :Abba/Mamma mia, Gay pride hérlendis og erlendis og þriðja þemað er stærðfræði.

Sigurvegarar síðustu keppni voru annað skiptið í röð Benedikt Waage og Ágúst Örn Gíslason, en þeir náðu 19 svörum réttum.


268. keppnin.

View My Stats