mánudagur, 26. nóvember 2007

30. NÓVEMBER

Spyrill þessa vikuna er hinn geðþekki tónlistar- og fjölmiðlamaður Guðmundur Steingrímsson.

Vegna æfinga leikfélagsins Peðsins, sem er leikfélag Grand Rokk, þurfum við að halda keppnina á neðri hæð staðarins. Við biðjumst velvirðingar á þessu raski, en vonum að það bitni ekki á keppninni.

Keppni Önnu Leu í síðustu viku unnu Jón Ingi og Víðir með 22 stig. Þetta var þeirra fyrsti sigur og óskum við þeim hjartanlega til hamingju.

þriðjudagur, 20. nóvember 2007

23 NÓVEMBER

Spyrill dagsins er Anna Lea Friðriksdóttir.

Keppni Arnar Úlfars í síðustu viku sigruðu Kjartan og Eiríkur með 24 stig og 3 svör rétt í bráðabana við Steinþór og Hilmar.

REGLUR

Mér þótti rétt að minna fólk á reglur og framkvæmd keppninnar.

Keppnin gengur undir nafninu Drekktu betur og er haldin á efri hæð Grand Rokk, Smiðjustíg 6, hvern föstudag klukkan 18:00.

Í hverri viku mætir nýr spyrill með 30 spurningar í farteskinu. Æskilegt er þó að hver spyrill sé einnig með 10-15 spurningar sem hægt er þá að nota í bráðabana og sem gjammspurningar.

Hvert lið sem keppir skal innihalda tvo einstaklinga. Ekki fleiri, ekki færri.

Þegar spyrill hefur lokið við að spyrja sinna 30 spurninga gefst keppnisliðum tími til að fara yfir svör og jafnvel að láta spyril lesa einstaka spurningar aftur.

Þvínæst skiptast lið á svarblöðum, þannig að ekkert lið fer yfir eigin svarblað.

Þegar búið er að fara yfir allar spurningar, skiptast liðin aftur á blöðum og á þá hvert lið að vera komið með sitt svarblað í hendur.

Eftir það er farið yfir hvaða lið er með flest svör rétt. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun, þarf sigurliðið að vera með 15 svör rétt eða fleiri.

Í hverri keppni er Bjórspurning. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Spyrill þarf þó að kvitta fyrir Bjórspurninguna.

Bráðabani: Þegar tvö eða fleiri lið hafa jafnmörg svör rétt eftir 30 spurningar skal gripið til bráðabana. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja þriggja spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir það, skal spyrill spyrja spurninga, einnar og einnar í einu þar til úrslit fást.

Gjamm og háreysti, sérstaklega í þeim tilvikum að svör eru kölluð yfir salinn, er einkar illa liðið. Er þá skipt um spurningu og svokölluð gjammspurning leysir þá fyrri af hólmi og gildir þá aðeins svarið við gjammspurningunni, en ekki spurningunni sem var spurt áður. Í grófum tilvikum, til dæmis við ítrekað gjamm, má vísa keppanda af keppnissvæði.

Spyrill er dómari og alvaldur og getur því tekið af skarið ef vafi leikur á staðreyndum í spurningu eða svari. Vilji spyrill ekki sjálfur taka afstöðu, má hann vísa til keppnisstjórnar, sem þá fellir dóm.

Keppnisgjöld eru engin, en þar sem við fáum salinn endurgjaldslaust er mælst til að keppendur versli sér áfengi á barnum. (Keppnin heitir jú Drekktu Betur)
Keppnisstjórn er heimilt í öllum tilvikum að kalla á lyfjapróf leiki grunur um að sigurlið hafi ekki innbyrt að hinu minnsta einn bjór, eða sambærilegan drykk.

Góða skemmtun og drekkum betur.
Gunnar F. Árnason
Keppnisstjóri

laugardagur, 10. nóvember 2007

16 NÓVEMBER

Þar sem föstudagurinn 16. nóv. er dagur íslenskrar tungu, munu verða veitt glæsileg aukaverðlaun í formi íslenskra bóka.

Spyrill verður Örn Úlfar Sævarsson og mun hann taka mið af deginum í spurningum sínum.

Síðustu keppni sigruðu Ölvir og Ágúst á glæsilegan hátt, með 20 stig.

miðvikudagur, 7. nóvember 2007

9. NÓVEMBER

Spyrill dagsins er Hinrik Þór Svavarsson.

Sigurvegarar síðustu viku voru Pétur Orri Gíslason og Óli Kári Ólason og sigruðu þeir með 18 stig eftir skemmtilega keppni.

View My Stats