mánudagur, 28. apríl 2008

2. MAÍ

Spyrill dagsins er Ágúst Örn Gíslason.

Sigurvegarar síðustu keppni voru Elías K. Guðmundsson og Halldór Kr. Þorsteinsson, en þeir komu út úr keppninni með 20 stig.

254

laugardagur, 26. apríl 2008

REGLUR

Keppnin gengur undir nafninu Drekktu betur og er haldin á efri hæð Grand Rokk, Smiðjustíg 6, hvern föstudag klukkan 18:00.

Í hverri viku mætir nýr spyrill með 30 spurningar í farteskinu. Æskilegt er þó að hver spyrill sé einnig með 10-15 spurningar sem hægt er þá að nota í bráðabana og sem gjammspurningar.

Hvert lið sem keppir skal innihalda tvo einstaklinga. Ekki fleiri, ekki færri. Þegar spyrill hefur lokið við að spyrja sinna 30 spurninga gefst keppnisliðum tími til að fara yfir svör og jafnvel að láta spyril lesa einstaka spurningar aftur. Því næst skiptast lið á svarblöðum, þannig að ekkert lið fer yfir eigin svarblað.Þegar búið er að fara yfir allar spurningar, skiptast liðin aftur á blöðum og á þá hvert lið að vera komið með sitt svarblað í hendur.Eftir það er farið yfir hvaða lið er með flest svör rétt. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun, þarf sigurliðið að vera með 15 svör rétt eða fleiri.

Í hverri keppni er Bjórspurning. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Spyrill þarf þó að kvitta fyrir Bjórspurninguna.

Bráðabani: Þegar tvö eða fleiri lið hafa jafnmörg svör rétt eftir 30 spurningar skal gripið til bráðabana. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja þriggja spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir það, skal spyrill spyrja spurninga, einnar og einnar í einu þar til úrslit fást.

Gjamm og háreysti, sérstaklega í þeim tilvikum að svör eru kölluð yfir salinn, er einkar illa liðið. Er þá skipt um spurningu og svokölluð gjammspurning leysir þá fyrri af hólmi og gildir þá aðeins svarið við gjammspurningunni, en ekki spurningunni sem var spurt áður. Í grófum tilvikum, til dæmis við ítrekað gjamm, má vísa keppanda af keppnissvæði.

Spyrill er dómari og alvaldur og getur því tekið af skarið ef vafi leikur á staðreyndum í spurningu eða svari. Vilji spyrill ekki sjálfur taka afstöðu, má hann vísa til keppnisstjórnar, sem þá fellir dóm.

Keppnisgjöld eru engin, en þar sem við fáum salinn endurgjaldslaust er mælst til að keppendur versli sér áfengi á barnum. (Keppnin heitir jú Drekktu Betur)
Keppnisstjórn er heimilt í öllum tilvikum að kalla á lyfjapróf leiki grunur um að sigurlið hafi ekki innbyrt að hinu minnsta einn bjór, eða sambærilegan drykk.

Góða skemmtun og drekkum betur.
Gunnar F. Árnason
Keppnisstjóri

mánudagur, 21. apríl 2008

25. APRÍL

Spyrill dagsins er Sveinn Blöndal, en hann mun spyrja spurninga sem faðir hans, Haraldur Blöndal skildi eftir sig.

Sigurvegarar síðustu keppni hlutu voru Sigurlaugur Ingólfsson og Kristbjörn H. Björnsson og hlutu þeir 19 stig.

föstudagur, 11. apríl 2008

18. APRÍL

Spyrlar dagsins eru Hafsteinn V. Hafsteinsson og Víðir Petersen, en þeir tóku sig til og unnu síðustu keppni með 24 rétt svör.

miðvikudagur, 9. apríl 2008

11. APRÍL

Spyrill dagsins er Sveinn Birkir Björnsson, en hann hefur getið sér gott orð sem ritstjóri Grapevine.


Sigurvegarar 250. keppninnar voru Örn Úlfar Sævarsson og Kristján Guy Burgess, en þeir höfðu þegar upp var staðið náð 22 réttum svörum og svo öðrum tveimur út úr skemmtilegum bráðabana við Snorra Guðmundsson og Hafdísi Eyjólfsdóttur. Hlutu þeir Örn og Kristján sinn bjórkassann hvor, ásamt gjafabréfi á veitingastað. Í sárabætur fyrir bráðabanann fengu Snorri og Hafdís einn bjórkassa, sem þau svo deila með sér.

View My Stats